Heiti námskeiðs: Microsoft Office 2007 - Word, Excel, PowerPoint, Outlook Námskeiðið er ætlað fólki sem hefur litla reynslu af tölvunotkun en vill læra að nýta sér Word, Excel, PowerPoint og Outlook. Áhersla er lögð á að þátttakendur kynnist því hvernig tölva getur nýst þeim í leik og starfi. Námskeiðið er í fjarnámi. Að námskeiði loknu ættu þáttakendur að hafa öðlast aukna sýn á tölvu- og upplýsingatækni og færni í notkun almenns hugbúnaðar og vera færir um að yfirfæra þekkingu sína á annan hugbúnað. Grunnatriði upplýsingatækninnar
Viðfangsefni: Farið verður í helstu aðgerðir upplýsingatækninnar. Þátttakendur læra að nota hugbúnað eins og Word, Excel, PowerPoint. Þeir vinna raunhæf verkefni til að þjálfa færni þeirra í notkun hugbúnaðarins. Vinnulag: Kennslan fer fram í fjarnámi. Þátttakendur vinna einstaklings verkefni. Umfang: 38 - 40 klukkustundir Tími: Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur. Umsjón: Kristín Helga Guðmundsdóttir, M.Ed. og MPA TIL BAKA Á FORSÍÐU |